Bergrós
31.08.2007 17:46:04 / begga

dáin útí bláin?

Já þessi síða er dáin, dó síðasta vor. Þess vegna fannst mér tilvalið að stofna aðra síðu jei jei jei:lol:

http://bergroskristin.blogspot.com/


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 21:39:04 / begga

9 dagar í próf

Vááá.... mér brá smá þegar ég var að horfa á heimildarþátt um daginn og hið skemmtilega bandaríska-slangur “motherfucker” var þýtt sem móðurserðir. Fannst það einhvern veginn fullbókstafleg þýðing8|

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 21:01:15 / begga

ojj....

Sjónvarpið mitt er í einhverju mótmælakasti og ég næ ekki neinum rásum nema Sýn! Ég er ekki einu sinni áskrifandi af sýn. Ojjj... þetta ömurlegt.

Held samt að þessi maður hafi það örlítið ömurlegra en ég. Hef grun um að náunginn eigi eftir að hafa smá móral eftir þetta--> http://news.bbc.co.uk/1/hi/england/london/6586879.stm


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.04.2007 21:19:49 / begga

...ræktin

Fór í ræktina og var í sakleysi mínu að gera magaæfingar. Karlmaður sem virtist vera í þvílíkt góðu formi lagðist svona 1 metra frá mér og byrjaði líka að gera magaæfingar. Eini munurinn var AÐ HANN STUNDI Í HVERT EINASTA SKIPTI sem hann kreppti fínu magavöðvana sína!!!! Mér fannst það soldið creepy8|

» 4 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 14:10:45 / begga

Fræðileg aðferð ( a.k.a. hræðileg meðferð) búin!!! (í bili)

Ég virðist bara blogga þegar próflok eru haha... sem ætti að þýða að næsta blogg ætti að vera á mánudaginn! Já fríið er nú ekki lengra en það. En þetta próf ætti ekki að vera það flókið;) Reyndar verður það ábyggilega frekar skemmtilegt! Þetta er klínískt próf þar sem við sýnum hæfni okkar í að skoða sjúklinga, svo verður viðtalshæfni okkar einnig könnuð:) E-ð sem maður er nú búinn að æfa sig fullt í heilsugæslustöðvunum í vetur. Ótrúlegt hvað fólk var viljugt að ræða við litla læknanema fyrir framan myndavélar og skýra frá vandamálum sínum. Held að við höfum ekki lent í neinum sem hafa neitað!

Það er samt alveg augljóst að sumarið er að koma. Veðrið er alveg yndislegt. Sól og hiti! Ok kannski ekki hiti... færi nú ekki alveg að sóla mig núna úti á bikiníinu mínu, en maður þarf ekki að vera dúðaður í úlpu og með trefil.

Ég er samt komin með nýtt æði núna. Hráskinku! mmmm... nammi namm.... Ískápurinn minn er orðinn voða ítalskur núna. Fullur af hráskinku, rjómaostum, pastasósum og ferskum parmesan osti:).... spurning hvort ég sé að finna minn innri Ítala haha. Mig er reyndar farið að vanta fleiri uppskriftir til að nota hráskinku í... svo ef þið lumið á einhverjum megiði endilega láta mig vita.

Pítsa með hráskinku er algjört æði!!!

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.04.2007 21:11:29 / begga

Gleðilega páska:)

Þá eru prófin búin, páskarnir búnir (2 dagar í skólann)... og næstu próf að nálgast....oj og ullabjakk...má ég ekki bara liggja og sofa til sumars:$ ohh.... afhverju getur páskafríið ekki verið lengra. Ég er samt búin að gera margt sniðugt í páskafríinu. Bíó, messur, partý, kaupæði og góður matur:haha:

Fór á myndina Sunshine, vááááááááá hvað hún er skelfilega léleg hahahaha... mæli engan vegin með henni. Nema fólk fíli Bandarískar-vælur með óskiljanlegum söguþræði og stórfurðulegum eðlisfræðilegum rökum... ef svo er, endilega skellið ykkur á hana;)

Svo ákvað ég að prufa að skella mér í kaþólska messu á páskadagsmorgun. Það var pínku spes en mjög gaman. Skemmtilegir siðirnir, sérstaklega þegar allir taka í höndina á öllum í kringum sig og þakka fyrir...... hef reyndar ekki grænan grun hvað fólkið sagði þegar það tók í höndina á mér, en ég þóttist hreyfa varirnar og mumbla e-ð sem hljómaði líkt hehe. Einnig voru rosalega fallegir söngvarnir:)

jæja.... tveir dagar eftir af fríinu, eins gott að nýta þá í e-ð sniðugt og skemmtilegt!


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.03.2007 23:10:32 / begga

Rónar og Alcan

Alcan tapaði og Hafnarfjörður vann. Miðað við hversu mikill áróður var búinn að vera frá andstæðingum stækkunarinnar hélt ég nú að munurinn yrði meiri (6382 manns andvígir stækkun álversins en 6294 með stækkuninni). En þetta minnir mann óneitanlega mikið á Kárahnjúkadeilurnar. Man einmitt eftir skemmtilegum samræðum sem ég átti við heimilislausan róna á Lækjartorgi um þær fyrir 3-4 árum. (nei ég var ekki róni fyrir 3-4 árum, nei ekki margir vina minna eru rónar og nei ég legg það ekki í vana minn að tala við róna). Hann var alveg hrikalega á móti virkjunum og ég ákvað því að vera með framkvæmdunum. Hehehe eiginlega bara til að gera samræðurnar skemmtilegri.... var ekki búin að kynna mér efnið nógu vel svo ég var eiginlega ekki með skoðun á málinu. Hann skildi ekkert í mér og fussaði og sveiaði yfir fávisku unga fólksins og kvartaði yfir hvað við værum nú að taka rangar ákvarðanir upp á framtíðina að gera. uuuu..... já, hehe hmm... hann var eflaust ekki rétti aðilinn að benda á rangar ákvarðanir upp á framtíðina að gera, en ég ákvað að nefna það ekki. Ég er ekki alveg svo vond hehe... svo var líka strætóinn minn kominn;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 22:27:36 / begga

super flirt?? hahaha

You Are a Super Flirt
You love to flirt, so much so that it gets you in trouble.
In almost any situation, you find yourself flirting - even when it's inappropriate.
You tend to embrace all flirting styles too.. from coy to sexy to playful to serious.
And if someone flirts back, you'll crank it up even more!
Ég dýrka svona próf... sérstaklega í prófum;) Maður kemst að hinu ótrúlegasta um sig haha.... ef ég væri dýr væri ég víst mörgæs og í prófinu í hvaða Britney Spears ég er, er ég "Sexy Almost Naked Britney"....hvernig gat ég lifað án þess að vita hvaða Britney ég er!!!!... úff

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.03.2007 16:45:05 / begga

tómatar eru vondir

úffpúff og ullabjak....

Alltaf gaman að vera í próflestri. Reyndar er fínt veður til þess... rigning/snjór, rok og skítakuldi. Maður kúrir sig inn í teppi, lætur í sig eyrnatappa og les þykkar bækur. Borðið mitt á lesstofunni ber líka þess augljós merki að prófatíð sé hafin. Þar má meðal annars finna
1. nammipoka

2. súkkulaði hrískökur

3. 2 þrista

4. hálfa appelsínflösku

5. tóma pepsi max flösku

6. hálfa samloku

Prófafötin eru líka algjört æði, tvöfaldir sokkar, þægilegustu gallabuxurnar mínar í heimi og skærgrænpeysa:haha: Eina ástæðan fyrir að ég er í grænni peysu er til að fela hvað ég er orðin mygluð hehe.... gott plan? hell ya!

Svo verður stórt djamm 3.apríl;) Allir að merkja við það á dagatalinu!! then wí are going tú sjeik some bútý 8) Þetta er reyndar þriðjudagur... en hver er ekki til í skemmtilegt þriðjudagsdjamm??

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 21:03:33 / begga

Hver í ósköpunum er Kangta??

Ok mig langaði að prufa og sjá hvaða frægri manneskju ég væri lík.... og ég er ekki sátt. Í fyrsta lagi .... hver í fjandanum er Kangta??? Hún er með stórfurðulegar augabrúnir... og af allt öðrum kynþætti. Og skv. þessu er ég lík fleirum asískum gellum! Er ég asísk útlits 8| ? Spurning hvort ég þurfi að athuga uppruna minn og ættarsögu betur. Svo er ein önnur manneskja þarna á listanum sem ég er eeeeeekki sátt við.... Liza Minnelli!! Kommon!


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 13:05:28 / begga

MYNDIR MYNDIr MYNDir MYNdir MYndir Myndir myndir

Myndirnar úr bústaðnum má finna HÉR

:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 18:49:12 / begga

Árshátíð á föstudaginn

jei!!! Árshátíð á föstudaginn:D Seinasta árshátíð var algjör snilld... maturinn hefði kannski mátt vera smá betri. Vonandi fáum við e-ð girnó núna. Held reyndar að ég hafi aldrei fengið góðan mat á þessum skólaárshátíðum. Held að það sé með ráðum gert svo stelpurnar verði ekki með sexý matarbumbu í fínu kjólunum sínum. (samsæri ekkert nema samsæri;) ) iss piss maður getur bara dansað hana af sér:D

Ég ætla klárlega að slá í gegn á dansgólfinu með þessum hreyfingum8)

Ég var samt að uppgötva að ég á enn eftir að láta sumarbústaðarmyndirnar inn:$ Ég geri það við fyrsta tækifæri. Ég ætla samt að láta eina mynd hér inn af fólkinu buslandi í pottinum:haha:

Vatnið var ekki alveg jafnhreint seinna um kvöldið þegar innihald heitapottsins var orðið 25% vatn, 15% kokteilávextir, 50% bolla og 10% annað áfengi (jólabrennivín og tópas) :haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 21:14:24 / begga

helú

hvað.... er e-ð langt síðan ég bloggaði?? Það er bara búið að vera svo skelfilega mikið að gera að ég er eiginlega hætt sjálf að líta á þessa síðu:S Ef einhver er búinn að finna upp tæki til að lengja sólarhringinn má hann endilega lána mér það! Þetta átti nú að vera lokafærslan mín.... þar sem ég ætlaði að tilkynna að ég væri hætt.... en svo fann ég þessa mynd af styttingu fjórðu táar sem er eitt af einkennum Refsum's disease. Mér fannst þetta alveg stórmerkilegt einkenni!! Hmm... kannski að ég finni fleira svona spes dóterí þegar ég er að dunda mér í próflestrinum:lol: .... svo þetta blogg er kannski ekki alveg dautt enn þá hehe;)

\


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 17:59:53 / begga

Forlög Örlög Álög Ólög?

Forlög koma ofan að
örlög kringum sveima,
álögin úr ugga stað,
ólög vakna heima

(Guðmundur Andrésson 17.öld)


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.12.2006 17:19:04 / begga

Bergrós kjáni:(

Afhverju sagði mér enginn að það væru ekki 36klst í sólarhringnum:( Úff... ég var einum of bjartsýn að ætla að vinna eins og brjálæðingur og ná að njóta jólanna í jólafríinu! Ég er búin að komast að því að jólafríið á að vera FRÍ. En það þýðir ekki að bakka núna svo jólin hjá mér einkennast af skeiningum og öðru góðgæti:haha: Heimilisfólkið á Hrafnistu er samt alveg yndislegt. Þótt það muni ekki alltaf eftir mér næsta dag þá eru þau algjörar dúllur og snillingar:) Ég var búin að gleyma hvað það er skemmtilegt að umgangast gamalt fólk... það er svo langt síðan afar mínir og ömmur dóu:(

Þessi jól eru samt búin að vera hreint fyrirtak. Ég sit núna pakksödd, að slæpast í tölvunni með köttinn í fanginu og reyna að hreinsa upp slefið hans sem hann vill endilega klína á lyklaborðið mitt:S Svo glefsar hann reglulega í puttana mína þegar honum finnst ég vera búin að vera of lengi að pikka á lyklaborðið þegar ég gæti verið að gera eitthvað nytsamlegra.... svona eins og að klóra og knúsa hann hehe :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7